Opið fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð

14.1.2020

Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum. Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til 17. febrúar 2020 klukkan 16:00. 

Búið er að opna fyrir umsóknir í Æskulýðssjóð. Sjóðurinn er fyrir börn og ungmenni frá 6 – 25 ára aldurs og ætlaður til þess að auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína.

Frestur til að sækja um styrki úr sjóðnum er til 17. febrúar 2020 klukkan 16:00.

Allir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um styrk úr sjóðnum. Ekki er gert ráð fyrir að hefðbundin íþróttafélög sæki um verkefni sem snúa að íþróttastarfsemi í þennan sjóð.

Hægt er að sækja um styrk tvisvar á ári. Næsti umsóknarfrestur verður 15. október 2020.

Nánari upplýsingar um hvernig sótt er um er á vef Æskulýðssjóðs.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica