Nýsköpunarverðlaun Íslands miðvikudaginn 18. nóv. kl. 11:00

17.11.2020

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2020 verða afhent með viðhöfn miðvikudaginn 18. nóvember kl. 11:00-11:30. 

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun afhenda verðlaunin eftir að Karl Guðmundsson, formaður dómnefndar gerir grein fyrir vinnu nefndarinnar þetta árið. Verðlaunaafhendingin fer fram í Norðurljósum í Hörpu í  beinni útsendingu á netinu.

Horfa á upptöku frá athöfninni

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og þróunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu.

Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um er að ræða sprotafyrirtæki, hvort það byggir á nýskapandi tækni og hugmynd og sé kröfuhart á þekkingu. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur eru á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð.

Neðangreind fyrirtæki hafa fengið verðlaunin frá því afhending þeirra hófst:

  • 2019 Curio
  • 2018 Kerecis
  • 2017 Skaginn hf.
  • 2016 Dohop
  • 2015 Zymetech
  • 2014 Meniga
  • 2013 Valka
  • 2012 Primex
  • 2011 Mentor
  • 2010 Nox Medical
  • 2009 Mentis Cura
  • 2008 ORF líftækni
  • 2007 Hafmynd
  • 2006 Stjörnu-Oddi
  • 2005 CCP
  • 2004 Lyfjaþróun
  • 2003 Altech JHM
  • 2002 Stofnfiskur
  • 2001 Fiskeldi Eyjafjarðar
  • 2000 Bláa lónið
  • 1999 Flaga
  • 1998 Íslensk erfðagreining
  • 1997 Hugvit
  • 1994 Vaki fiskeldiskerfi








Þetta vefsvæði byggir á Eplica