Styrkir úr Tónlistarsjóði 2016

16.10.2015

Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr tónlistarsjóði til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2016.  Umsóknarfrestur rennur út 16. nóvember 2015 kl. 17:00.

Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir, tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í umsóknarkerfi Rannís. Lokaskýrslum skal einnig skila rafrænt, sjá upplýsingar hér.

Auglýst verður eftir umsóknum í apríl 2016  vegna verkefna á seinni hluta ársins.

Nánari upplýsingar um sjóðinn









Þetta vefsvæði byggir á Eplica