Tækifæri og styrkir fyrir fyrirtæki í nýsköpun

15.4.2019

Vinnustofa um tækifæri og styrki fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á sviði nýsköpunar og viðskiptaþróunar í bláa og græna hagkerfinu verður haldin á vegum Uppbyggingasjóðs EES, miðvikudaginn 24. apríl kl. 8:30-11:30 hjá Íslandsstofu að Sundagörðum 2.

  • Uppbyggingasjodur-EES-vinnustofa

Á vinnustofunni verður sérstök áhersla á samstarfsáætlanir Uppbyggingasjóðs EES í Portúgal, Grikklandi og Rúmeníu. Fulltrúi frá Innovation Norway mun kynna áætlanirnar ásamt Rannís, Matís, NMÍ og Íslandsstofu.

Einnig verður kynnt tengslaráðstefna sem haldin verður 22. maí fyrir áætlanir sjóðsins í bláa hagkerfinu og sagt frá mögulegum ferðastyrkjum fyrir íslenska aðila til að sækja hana. 

Dagskrá:

  • 8:30-9:30 Nýsköpunar- og viðskiptatækifæri í bláa og græna hagkerfinu og tengslaráðstefnur. Anne Lise Rognlidalen verkefnastjóri hjá Innovation Norway
  • 9:30-9:40 Stuðningur við þátttöku íslenskra aðila. Aðalheiður Jónsdóttir sviðsstjóri alþjóðasviðs Rannís og Mjöll Waldorf verkefnastjóri Enterprise Europe Network á NMÍ.
  • 9:40-9:50 Dæmi um samstarfsverkefni innan EES svæðisins. Bryndís Björnsdóttir forstöðumaður lausna og ráðgjafar hjá Matís.
  • 9:50-10:10 Kaffihlé.
  • 10:10-11:30 Umræður og spurningar. Fyrirlesarar verða til viðtals og veita ráðgjöf.

Vinnustofan er skipulögð af utanríkisráðuneytinu í samstarfi við Rannís, Matís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Íslandsstofu og Háskóla Íslands.

Allir áhugasamir velkomnir á meðan húsrúm leyfir!

Nánar um Uppbyggingasjóð EES hér.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica