Umsóknafrestur í Innviðasjóð framlengdur til 20. maí

7.4.2020

Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest Innviðasjóðs sem vera átti 21. apríl til 20. maí vegna Covid-19 faraldursins.

Þar sem lokun stofnanna, fjarvinna og aðrar aðstæður vegna Covid-19 faraldursins gætu haft áhrif á gæði umsókna í Innviðasjóð, hefur stjórn sjóðsins ákveðið að framlengja umsóknarfrestinn, sem áður var auglýstur 21. apríl, til 20. maí kl. 16:00.

Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.

Við úthlutun úr Innviðasjóði er tekið mið af úthlutunarstefnu Innviðasjóðs og eftirtalin atriði lögð til grundvallar:

  • Að innviðirnir séu mikilvægir fyrir framfarir í rannsóknum á Íslandi og fyrir rannsóknir umsækjenda.
  • Að fjárfesting í innviðum skapi nýja möguleika til rannsókna og/eða innviðirnir tengist verkefnum sem Rannsóknasjóður styrkir.
  • Að samstarf verði um nýtingu innviða milli stofnana eða milli stofnana og fyrirtækja með fyrirsjáanlegum hætti.
  • Að áætlanir um kostnað og fjármögnun séu raunhæfar.
  • Að innviðirnir auki möguleika á menntun og þjálfun á viðkomandi fræðasviði.
  • Innviðir sem komið er upp með styrk frá sjóðnum skulu vera aðgengilegir öðrum rannsóknahópum eftir því sem svigrúm er til og skal sjóðnum gerð grein fyrir hvernig aðgengi verður háttað.

Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel reglur sjóðsins áður en umsókn er gerð. Handbók Innviðasjóðs má finna á vefsíðu Innviðasjóðs.

Í samræmi við stefnu og aðgerðaráætlun Vísinda- og tækniráðs frá 2017 er verið að vinna að gerð vegvísis fyrir rannsóknainnviði. Auglýst verður fljótlega eftir umsóknum um viðameiri innviði sem eiga erindi á vegvísi um rannsóknainnviði.

Steinunn S. Jakobsdóttir veitir upplýsingar um Innviðasjóð.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica