Vísinda- og tæknistefna 2020-2022

2.9.2020

Vísinda- og tæknistefna 2020-2022 var samþykkt á fundi Vísinda- og tækniráðs 1. september. Í stefnunni er sett fram sýn til næstu 10 ára ásamt aðgerðum til stuðnings.

Aðgerðirnar miða meðal annars að því að hækka framlag í samkeppnissjóði í vísindum og nýsköpun á næstu árum með tímabundnu þriggja ára átaki. Munu sjóðirnir vaxa um u.þ.b. 50% á árinu 2021 miðað við fjárlög ársins 2020. Aðrar aðgerðir ganga út á að efla gæði í háskólastarfi og fjármögnun háskóla, auka aðgang að opinberum gögnum, styrkja miðlun vísinda og efla færni á vinnumarkaði svo fólk verði betur í stakk búið til að takast á við örar tæknibreytingar í náinni framtíð.

Í Vísinda- og tæknistefnunni er einnig lögð áhersla á mikilvægi vísinda og nýsköpunar til að takast á við samfélagslegar áskoranir eins og loftslagsvá, eflingu heilsu og velferðar og fjórðu iðnbyltinguna.

Sækja Vísinda- og tæknistefnu 2020-2022

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er formaður Vísinda- og tækniráðs. Aðrir ráðherrar sem sitja í ráðinu eru: Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. Auk ráðherra sitja sextán manns í ráðinu. Formenn starfsnefnda ráðsins eru Ragnhildur Helgadóttir (vísindanefnd) og Ragnheiður H. Magnúsdóttir (tækninefnd).









Þetta vefsvæði byggir á Eplica