Jules Verne

16.4.2009

    

Vísinda- og tæknisamstarf Frakklands og Íslands

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til vísinda- og tæknisamstarfs milli íslenskra og franskra aðila á grundvelli Jules Verne samstarfssamningsins. Menntamálaráðuneytið stýrir samstarfinu fyrir hönd Íslands en Rannís sér um framkvæmd verkefnisins

 

Umsóknarfrestur er 18. september 2009. 

  

Veittir eru styrkir til ferða- og dvalarkostnaðar fyrir vísindamenn til gagnkvæmra heimsókna á árunum 2010-2011.

 

Tilgangurinn með þessu samstarfi er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndunum og auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu.

 

Vísindamenn á öllum sviðum grunnrannsókna og hagnýtra rannsókna geta sótt um. Virk þátttaka ungra vísindamanna, þ.e. doktorsnema eða þeirra sem nýlega hafa lokið doktorsnámi er eitt af þeim skilyrðum sem verkefnin þurfa að uppfylla til að hljóta styrk.

 

Í ár verður lög áhersla á verkefni á sviði félags- og hugvísinda, örtækni og umhverfistækni.

   

Stofnanir sem eiga í samstarfi er gert að leggja inn hver fyrir sig umsókn til þeirra aðila sem hafa yfirumsjón í hvoru landi fyrir sig. Aðeins koma til greina umsóknir sem eru lagðar fram af báðum aðilum.

 

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna hér.
Umsjón með Jules Verne hjá Rannís hefur Elísabet M. Andrésdóttir, netfang: elisabet@rannis.is, sími 515 5809. 









Þetta vefsvæði byggir á Eplica