Rannsóknasjóður: nóvember 2023

21.11.2023 : Binding niturs við umhverfisaðstæður með kerfisbundinni hönnun á rafefnahvötum - verkefni lokið

Binding köfnunarefnis á formi ammóníaks og/eða nítrats er gríðalega mikilvægt ferli þar sem þessi efni eru notuð til að búa til köfnunarefnisáburð til að auka uppskeru bænda. Með öndvegisstyrk fyrir verkefnið gafst tækifæri til að ráða fjölda nemenda og nýdoktora til að vinna að rafefnafræðilegri N2 afoxun í ammóníak í vatnslausn við herbergisaðstæður.

Lesa meira

21.11.2023 : Rafeinda- og kjarnafærslur í sólhlöðum með járnefldri næmni: Samhæft líkan fyrir ferlið frá gleypni ljóss til aðskilnaðar hleðslanna - verkefni lokið

Örvað ástand er grundvöllur fyrir umbreytingu ljóss í orku og fyrir virkni sólarrafhlaða þar sem næmni er aukin með litarefnum úr algengum málmum. Í þessu verkefni var nýstárleg aðferð þróuð til að framkvæma tölvuútreikninga á örvuðu ástandi. 

Lesa meira

21.11.2023 : Frá öskuhaugum til urðunar. Fornleifafræði íslensks heimilissorps frá 1850-1990 - verkefni lokið

Rannsóknarverkefnið skoðaði fornleifar og ritaðar heimildir um rusl á 19. og 20. öld. Niðurstöður þess eru að framleiðsla rusls er einn af  grunnþáttum í samskiptum manna við umhverfi sitt. 

Lesa meira

21.11.2023 : Umhverfisbreytingar í Hula-dalnum (Ísrael) fyrir 20-10 þúsund árum fyrir okkar tíma - verkefni lokið

      Þetta verkefni fjallar um breytingar á hinu forna umhverfi í kringum fornleifasvæði í Norður-Ísrael á tímum umskipta, frá hámarki síðasta jökulskeiðs yfir í núverandi millijöklatímabil (Holocene), einnig þekkt sem Epipaleolithic í Miðausturlöndum. 

Lesa meira









Þetta vefsvæði byggir á Eplica