Tækniþróunarsjóður: október 2022

28.10.2022 : Ævintýralandið – Alvöru þykjustuleikur - verkefni lokið

Ævintýralandið – Alvöru þykjustuleikur hlaut sprotastyrk Tækniþróunarsjóðs í vorúthlutun 2020 og vinnan litaðist af heimsfaraldri Covid. Þrátt fyrir að þjóðfélagið hafi lamast að miklu leyti, þá komst teymið yfir þá áskorun og hefur á tveimur árum náð öllum markmiðum verkefnisins samkvæmt áætlun.

Lesa meira

28.10.2022 : Örmælir - verkefni lokið

Verkefnið felst í hönnun og þróun á tæki (Örmæli) sem mælir vökvamagn í míkrólítrum, eða mjög lítið rúmmál. 

Lesa meira

28.10.2022 : Alþjóðleg markaðssókn Ankeri Platform - verkefni lokið

Ankeri hlaut markaðsstyrk Tækniþróunarsjóðs snemma árs 2021. Verkefnið fól í sér gerð markaðsáætlunar, þróa markaðsefni og hefja sókn á markað. Vegna Covid-19 var umhverfi til alþjóðlegrar markaðssóknar á tímabilinu krefjandi. Með skapandi nálgun og endurmati á aðferðum náði Ankeri þó góðum markaðstengdum árangri og niðurstöður verkefnisins skapa góðan grunn fyrir alþjóðlega markaðssókn Ankeris til framtíðar.

Lesa meira

28.10.2022 : Dicino - fjöltyngda forskráningarkerfið - verkefni lokið

Dicino Medical Technologies hlaut styrk frá Tækniþróunarsjóði til að sækja á markað með fjöltyngt forskráningarkerfi.

Lesa meira

27.10.2022 : Dreki - Þróun blæðingar- og kælibúnaðar - verkefni lokið

Rannsóknar- og þróunarverkefnið „Dreki - Þróun blæðingar- og kælibúnaðar“ snéri að endurhönnun og umbótum á blóðgunar- og kælibúnaðinum Dreka sem framleiddur hefur verið af Micro Ryðfrí Smíði ehf. frá árinu 2012 og notaður um borð í skipum með góðum árangri. Verkefnið var unnið í samstarfi Micro, Matís og útgerðarinnar Skinney-Þinganes. 

Lesa meira

27.10.2022 : Lokbrá / Mína og Draumalandið - verkefni lokið

Fyrirtækið NúnaTrix ehf var stofnað eftir að verkefnið okkar, Mína og Draumalandið, hlaut styrkveitingu Tækniþróunarsjóðs árið 2019. Við sérhæfum okkur í þróun og nýsköpun innan sjúklingafræðslu og markmið okkar er að efla heilsulæsi fólks á öllum aldri með gagnvirkum kennslutölvuleikjum okkar og miðlum fræðslu í gegnum leik með nýjustu tækni.

Lesa meira

27.10.2022 : Vélnám við flokkun sögulegra ljósmynda - verkefni lokið

Haustið 2021 gekk IMS til samstarfs við Tækniþróunarsjóð að fengnu vilyrði um 1 árs markaðsstyrk. Tilgangurinn var að markaðssetja IMS í Evrópu.

Lesa meira

27.10.2022 : Svífandi göngustígakerfi - verkefni lokið

Hönnun nútímalegra, tæknilegra og umhverfisvænna svífandi stíga er lokið og þeir komnir á markað. Hannaðar hafa verið mismunandi einingar til þess að gera fjölbreyttar útfærslur af stígum sem virka einnig vel við erfiðustu aðstæður. 

Lesa meira

27.10.2022 : Lúpína í nýju ljósi – trefjaefni framtíðar - verkefni lokið

Úr alaskalúpínu er hægt að framleiða umhverfisvænt trefjaefni sem nýta má í matvælaumbúðir eða byggingarefni

Lesa meira

27.10.2022 : Einstaklingsmiðuð skjalageymsla á bálkakeðju - verkefni lokið

Hugbúnaðarfyrirtækið Code North ehf. hefur gefið út appið Records.is fyrir rafræna varðveislu og undirritun skjala. Lausnin er sérstaklega hönnuð með þarfir einstaklinga og smærri fyrirtækja í huga og er ætlað að aðstoða þá aðila að halda utan um lagaleg skjöl, undirrita rafræn skjöl og senda skjöl til undirritunar. 

Lesa meira

26.10.2022 : Mín heilsa - verkefni lokið

Síðustu þrjú ár hefur fyrirtækið Nordverse AI unnið að máltæknilausn sem styrkt var af Tækniþróunarsjóði. 

Lesa meira

26.10.2022 : Næsta kynslóð sjávarnasls - verkefni lokið

Verkefnið Næsta kynslóð sjávarnasls er lokið. Verkefnið var samvinnuverkefni Responsible Foods ehf. og Loðnuvinnslunnar hf. Markmið verkefnisins var að þróa og framleiða hágæða mjög nýstárlega og umbyltandi þurrkaða naslvöru úr aukaafurðum sjávarfangs fyrir bæði innlendan og erlendan markað. 

Lesa meira

25.10.2022 : Nýr umhverfisvænn kragasalli - verkefni lokið

Verkefnið gekk út á að þróa nýjan umhverfisvænan kragasalla sem verndar skautgaffla í rafgreiningarkerum álvera. Kragasalli gerir áverum kleift að nýta rafskaut sín betur og takmarkar því hvað verður til af skautleif, og dregur þannig úr kostnaði við að flytja skautleifina úr landi þar sem hún er notuð til að framleiða frekari rafskaut.

Lesa meira

25.10.2022 : Arkio markaðssetning í sýndarveruleika - verkefni lokið

Ný útgáfa af Arkio, sem gerir notendum kleift að hanna arkítektúr í sýndarveruleika, hefur verið sett á markað á Meta Quest App Store. Arkio vann þess uppfærslu

Lesa meira

25.10.2022 : Framleiðsla á vaxtarþáttum fyrir kjötræktun - verkefni lokið

ORF Líftækni hefur framleitt vaxtarþætti (/frumuvaka) í erfðabreyttum byggplöntum síðan 2007 sem hafa verið notaðir í margskonar frumurannsóknum og einnig í húðvörur. Í þessu styrkverkefni hóf ORF framleiðslu á dýrafrumuvökum ætluðum fyrir stofnfrumuræktað kjöt, vistkjöt, sem er nýtt og mjög ört vaxandi svið. Með því að rækta kjöt á þennan hátt er hægt að draga verulega úr losun gróðurhúsaloftegunda ásamt vatnsnotkun og orkuþörf og einnig þarf mun minna landsvæði fyrir þessa ræktun samanborið við hefðbundna ræktun. 

Lesa meira

25.10.2022 : Opið fyrir umsóknir í Fræ/Þróunarfræ

Fræ og Þróunarfræ hafa það að markmiði að styðja við hugmyndir og verkefni á frumstigi sem geta leitt af sér stærri þróunarverkefni. Umsóknir sem berast fyrir 1. nóvember nk. verða teknar fyrir af fagráði sjóðsins í næstu lotu.

Lesa meira

24.10.2022 : Umhverfisvæn ásæturvörn - verkefni lokið

Sprotafyrirtækið Hripa ehf. hefur með styrk frá Tækniþróunarsjóði þróað nýja ásæturvörn til notkunar í sjó án allra eiturefna og hefur efnið nú verið í prófunum s.l. 3 ár hér á landi og í Svíþjóð. 

Lesa meira

24.10.2022 : GeConnect - verkefni lokið

GeConnect verkefninu lauk í árslok 2021. Samstarfsaðilar í verkefninu voru ÍSOR sem leiddu verkefnið, Orka náttúrunnar, HS Orka, Landsvirkjun og rannsóknastofnanirnar TNO frá Hollandi og GFZ frá Þýskalandi.

Lesa meira

20.10.2022 : Igloo - verkefni lokið

Fyrsta fasta verkefnisins Igloo sem Tækniþróunarsjóður styrkti er lokið. Igloo er fjármála- og leiguvettvangur á netinu og í appi sem gerir einstaklingum og fyrirtækjum kleift að eiga öruggari viðskipti á leigumarkaði og nota upplýsingar þaðan til að bæta kjör sín á almennum fjáramálavörum og tryggingum.

Lesa meira

17.10.2022 : Úthlutun Tækniþróunarsjóðs í Fyrirtækjastyrk Fræ og Þróunarfræ

Tilkynnt hefur verið um úthlutun úr Tækniþróunarsjóði Fræ/Þróunarfræ.

Lesa meira









Þetta vefsvæði byggir á Eplica