Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð

11.8.2023

Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum  Sproti, Vöxtur  og  Markaður. Umsóknarfrestur er 15. september 2023, kl. 15:00.

  • Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi. Fyrirkomulag umsóknarkerfis í Sprota er breytt.

  • Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.

  • Markaður er nú skipt í tvo ólíka styrktarflokka og því mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel reglur sjóðsins. Sjóðurinn er ætlaður litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem verja að lágmarki 10% af veltu sinni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.

Umsóknarfrestur er 15. september 2023, kl. 15:00.

Fyrirhugað er að halda kynningarfundi í ágúst og verða þeir auglýstir um leið og dagsetningar liggja fyrir.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Nánari upplýsingar á síðu Tækniþróunarsjóðs.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins:

Reglur Tækniþróunarsjóðs haustið 2023









Þetta vefsvæði byggir á Eplica