Opið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð

9.1.2024

Tækniþróunarsjóður hefur opnað fyrir umsóknir í styrktarflokkunum  Sproti, Vöxtur, Hagnýt rannsóknarverkefni og  Markaður. Umsóknarfrestur er 15. febrúar 2024, kl. 15:00.

  • Sproti er fyrir ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla og hefur það að markmiði að styðja við verkefni á byrjunarstigi. Umsóknarferlið í Sprota er þrepaskipt.

  • Vöxtur er fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar og er Sprettur öndvegisstyrkur innan Vaxtar.

  •   Hagnýt rannsóknarverkefni er fyrir háskóla, opinberar rannsóknarstofnanir eða opinber fyrirtæki og hafa það að markmiði að afla nýrrar þekkingar og kunnáttu sem nýtist til að þróa nýjar vörur, verkferla eða þjónustu. Eða til að koma í kring umtalsverðum endurbótum á eldri vörum, verkferlum eða þjónustu. Verkefnið þarf að vera með skýr og raunhæf markmið um hagnýtingu

  • Markaður er markaðsstyrkur til fyrirtækja sem skiptist í tvo ólíka flokka: markaðsþróun og markaðssókn. Þessum flokkum er ætlað að styðja við fyrirtæki á mismunandi stigum í undirbúningi afurðar á markað. Markaður er ætlaður litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem verja að lágmarki 10% af veltu sinni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.

Starfsfólk sjóðsins verður með viðveru í Grósku frá og með 16. janúar næstkomandi fram að umsóknarfresti. Staður: Fundarherbergið Engjarós milli 9:00 og 14:00 og er ekki þörf á að bóka tíma áður (e. walk-in).

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur sjóðsins:
Reglur Tækniþróunarsjóðs vorið 2024

Umsóknarfrestur er 15. febrúar 2024, kl. 15:00 og er sótt um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís

Haldnir verða kynningarfundir þann 11. janúar á Akureyri og 18. janúar á Selfossi

Akureyri:

  • 11. janúar kl. 12:00 í Menningarhúsinu Hofi.
    Skráning

Selfoss:

  • 18. janúar kl. 12:00 - 13:00 í húsakynnum Fræðslunetsins við Tryggvagötu 13.
    Skráning








Þetta vefsvæði byggir á Eplica