Vel heppnaður kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð

21.8.2023

Samtök iðnaðarins, Samtök sprotafyrirtækja og Rannís stóðu fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð miðvikudaginn 16. ágúst síðastliðinn. 

  • Kona í pontu

Á fundinum kynntu Svandís Unnur Sigurðardóttir og Davíð Lúðvíksson sérfræðingar á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna í Tækniþróunarsjóði og Skattfrádrætti rannsókna- og þróunarverkefna og Skattfrádrætti erlendra sérfræðinga.

Á fundinum var farið yfir ólíka styrkjaflokka Tækniþróunarsjóðs, umsóknarferli og frestum. Þess má geta að umsóknarfrestur í fyrirtækjastyrkina Vöxt/Sprett, Sprota og Markað rennur út 15. september næstkomandi. Einnig var fjallað um frádrætti vegna erlendra sérfræðinga auk þess sem kynntur var skattfrádráttur á kostnaði vegna rannsóknar- og þróunarverkefna með sérstakri áherslu á þau vafaatriði sem fyrirtæki geta staðið frammi fyrir í umsóknarferlinu.

Einnig komu í pontu Íris Baldursdóttir, framkvæmdarstjóri Snerpa Power og Jón Már Björnsson, framkvæmdarstjóri þróunarsviðs ORF líftæknis, og sögðu þau frá sinni reynslu af því að sækja í þetta mikilvæga stuðningskerfi Rannís og Tækniþróunarsjóðs.

Á fundinum kom fram að stuðningskerfi líkt og Tækniþróunarsjóður og endurgreiðslur á rannsóknar- og þróunarkostnaði skipta sköpum fyrir starfsumhverfi fyrirtækja í nýsköpun hér á landi, enda fjárfesting ekki bara í nýsköpun heldur störfum, fólki og hagvexti.

Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, sá um fundarstjórn.

Upptaka af fundinum

 Frétt á vef SI

Á myndunum má sjá Svandísi Unni Sigurðardóttir, Davíð Lúðvíksson og Erlu Tinnu Stefánsdóttur.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica