September 2043

september 2043

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Á döfinni

Æskulýðssjóður

aeskulydssjodur(hja)rannis.is

  • 1.3.2023 - 15:00, Umsóknarfrestur
  • 16.10.2023 - 15:00, Umsóknarfrestur

Hvert er markmiðið?

Æskulýðssjóður byggir á Æskulýðslögum ( nr. 70/2007) og reglugerð um Æskulýðssjóð ( nr. 60/22. janúar 2008 ásamt breytingum nr. 173/2016 febrúar 2016 og breytingum nr. 60/2. desember 2016 ).  Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Einkum er horft til verkefna sem eru unnin fyrir börn og ungmenn og/eða með virkri þátttöku þeirra, þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, nýjungar og þróunarverkefni og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.

Hverjir geta sótt um?

Allir þeir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök. Ekki er gert ráð fyrir að hefðbundin íþróttafélög sæki um verkefni sem snúa að íþróttastarfsemi í þennan sjóð.

Hvað er styrkt?

Verkefni fyrir börn og ungmenni á vegum æskulýsfélaga og æskulýðssamtaka (Sjá nánar 1. gr. í reglum sjóðsins).  

Skilyrði úthlutunar og forgangsatriði

Verkefnin þurfa að falla að markmiðum laga um Æskulýðsfélög. Þar segir að með æskulýðsstarfi sé átt við skipulagða félags- og tómstundastarfsemi þar sem börn og ungmenni starfa saman í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þau sjálf meta að verðleikum. Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né endurtekna viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar atburði né ferðir hópa. Lögð er áhersla á að styrkja almennan verkefniskostnað en ekki launakostnað.

Nánari upplýsingar

  • Andrés Pétursson, s. 515 5833
  • Tekið er á móti fyrirspurnum á aeskulydssjodur(hja)rannis.is







Þetta vefsvæði byggir á Eplica