Fyrir starfsmenn háskóla og stofnana sem tengjast norðurslóðafræðum.
Til að efla langtíma samstarf íslenskra og norskra stofnana með sóknarstyrkjum vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði.
Lokað fyrir umsóknir 2022.
Áætlunin byggir á samkomulagi um samstarf á sviði heimskautafræða og rannsókna á milli Íslands og Noregs. Utanríkisráðuneyti Noregs og Íslands eiga og fjármagna áætlunina en Rannís hefur umsjón með henni í samvinnu við Directorate for Higher Education and Competence (HK-dir) í Noregi. Tímabil áætlunarinnar nær frá árinu 2019 til ársins 2020, en verkefnum gæti lokið síðar.
Styrkir eru veittir til undirbúningsvinnu (sóknar- og ferðastyrkir) við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði.
Sjá nánari upplýsingar í Programme Guide.
1. Lesa Programme Guide.
2. Fylla út viðauka eitt , tvö og þrjú með umsókn
3. Fylla út rafræna umsókn 2019-2020