Fyrir hverja?
Fyrir þá sem stunda rannsóknir í hug- og félagsvísindum.
Tilgangur NOS-HS er að stuðla að samstarfi hug- og félagsvísindamanna á Norðurlöndunum.
Næsti umsóknarfrestur um vinnusmiðjur (workshops) er til 31. mars 2021 kl. 13:15 (16:15 að finnskum tíma (CEST-01.00)).
NOS-HS er samstarfsvettvangur í hug- og félagsvísindum á vegum fjármögnunaraðila rannsókna í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð.
NOS-HS býður upp á styrki til að standa straum af kostnaði vegna vinnusmiðja, eða sk. Workshops. Rannsakendur sem starfa að rannsóknum í hug- og félagsvísindum og skyldum greinum geta sótt um styrk.
Frekari upplýsingar er að finna á Vefsíðu NOS-HS.
Okkur er umhugað um persónuvernd. Kynntu þér stefnuna okkar hér.
Loka