Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012

Fyrirtækið Primex hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012 sem afhent voru á Nýsköpunarþingi 2012. Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir, markaðsstjóri Primex veitti verðlaununum viðtöku ásamt hluta af starfsmönnum fyrirtækisins.

""

Á Nýsköpunarþingi var stjórnun nýsköpunar gerð að umfjöllunarefni og voru fjórir aðilar úr atvinnulífinu fengnir til að segja frá reynslu sinni og verkefnum á þessu sviði. Tæplega 300 manns sóttu þingið, sem haldið var á Grand hótel Reykjavík. Primex, sem stofnað var 1997 og staðsett er á Siglufirði, framleiðir kítin og kítósan úr rækjuskel. Kítósan er verðmætt og eftirsótt efni, sér í lagi á erlendum mörkuðum og hefur fyrirtækið náð góðri markaðsstöðu í Bandaríkjunum, Asíu og Evrópu auk þess sem fyrirtækið komst nýlega inn á markað í Rússlandi. Eiginleikar kítósans eru nýttir við framleiðslu á fæðubótarefnum, sárameðferðarefnum og snyrtivörum auk þess sem það er notað í vínframleiðslu og matvæli. Í matvælaframleiðslu er efnið notað sem náttúrulegar trefjar og rotvarnarefni og hefur þessi nýi notkunarmöguleiki opnað fyrirtækinu fleiri tækifæri. Primex hefur fengið ISO 22000 staðalvottun sem tryggir öryggi í framleiðslu á matvælum.

Það sem áður var úrgangur er nú hráefni

Upphaflega hugmyndin að fyrirtækinu sneri að því hvernig auka mætti nýtingu sjávarafurða með því að nýta úrgang sem hráefni og virða umhverfissjónarmið um leið. Rækjuskel er mjög umhverfismengandi en henni hefur árum saman verið hent í sjóinn. Eftir að hafa fræðst um möguleika og tækifæri efnisins kítósan og kynnt sér framleiðsluaðferðir og markaði, ákváðu fyrirtækin Rammi á Siglufirði og Síldarvinnsla ríkisins að stofna fyrirtæki í kringum hugmyndina og reisa verksmiðju á Siglufirði. Úr varð fyrirtækið Kítín, síðar Primex, sem hóf framleiðslu á kítin og kítósan árið 1999. Gerður var samningur við bandaríska fyrirtækið Vanson árið 2004 um kaup á þekkingu til uppbyggingar verksmiðju og um einkaleyfi að vörumerkinu LipoSan Ultra. Vanson var þá stærsti framleiðandi kítósan í Bandaríkjunum en flutti alla framleiðslu sína til Siglufjarðar. Við þetta opnuðust markaðir í Bandaríkjunum fyrir Primex, þó aðallega fyrir kítósan í fæðubótarefni og snyrtivörur.  

Framleiðsla á eigin neytendavörum

LipoSan er fitubindiefni með náttúrulegu trefjum sem kítósan inniheldur og hafa þann einstaka eiginleika að draga til sín fitu. Varan er hugsuð fyrir þá sem þurfa að ná tökum á líkamsþyngd og bæta meltingu. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt fram á getu efnisins til að lækka kólesteról. LipoSan vörurnar eru fáanlegar í öllum helstu apótekum landsins, sem og heilsuvörubúðum. ChitoClear er hins vegar sárasprey og gel fyrir dýr og er efnið mjög græðandi og dregur úr sársauka og kláða í og við sár. Auk þess virkar það gegn bakteríu- og sveppamyndun. ChitoClear hefur verið selt hér á landi og í Þýskalandi. ChitoClear hefur aðallega verið markaðssett fyrir dýr en efnið er líka gott fyrir fyrir fólk. Frá 2001 hefur Primex selt kítósan til fyrirtækja í Evrópu og Bandaríkjunum sem framleiða vörur til að stöðva blæðingar og græða sár. Árið 2004 hlaut fyrirtækið viðurkenningu fyrir kítósanplástra sem eina af efstu tíu uppfinningum í hernaði, en þeir hafa verið notaðir meðal annars á vígvellinum í Írak þar sem þeir björguðu lífi hundruð hermanna.

Framtíðin grundvallast á útflutningi kítósans

Framleiðsla Primex mun til framtíðar grundvallast á útflutningi kítósans sem hráefnis fyrir aðra framleiðendur. Samhliða er verið að skoða möguleika á að auka fjölbreytni í framleiðslu eigin neytendavara, t.d. snyrtivara og græðandi smyrsla. Einnig er verið að skoða möguleika á að framleiða prótein úr úrgangi frá skelvinnslu til fiskeldisfóðurframleiðslu en rækjuskelin sem Primex notar kemur frá rækjuverksmiðjum Ramma hf. á Siglufirði og Dögun á Sauðárkróki.  Íslenska kítósanið er hágæða efni og liggur mikil þróunarvinna og rannsóknir á virkni efnisins að baki framleiðslunni. Gæðin hafa gert fyrirtækinu kleift að færa sig inn á verðmætari markaði. Nú starfa hjá fyrirtækinu fimmtán sérþjálfaðir starfsmenn sem hafa komið fyrirtækinu á kortið á kröfuhörðum mörkuðum erlendis.

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins, til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og vísindastarfi og náð hefur árangri á markaði.  Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.

Við val á verðlaunahafa er litið til þess hvort um sé að ræða nýtt sprotafyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskapandi tækni og hugmynd og sé kröfuhart á þekkingu. Þá er lagt mat á virðisauka afurða og hvort fyrirtækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrirtækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftirbreytni. Að lokum er metið hvort fyrirtækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica