Vísindavaka Rannís

Stefnumót við vísindamenn!

Á Vísindavöku Rannís síðustu ára hefur almenningi staðið til boða sannkölluð vísindaveisla þar sem okkar fremsta vísindafólk hefur sýnt og sagt frá rannsóknum og nýsköpun á lifandi og gagnvirkan hátt. Vísindavaka Rannís verður haldin í Laugardalshöllinni 1. október 2022.

Rannís stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi, en almennt er hún haldin samtímis í helstu borgum Evrópu síðasta föstudag í september undir heitinu European Researchers' Night. Verkefnið er styrkt af Marie Sklodowska-Curie undiráætlun Horizon 2020.

Vísindavaka Rannís verður haldin í Laugardalshöllinni 1. október 2022.

Markmiðið með Vísindavökunni er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Verður það gert með lifandi kynningum og boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna. Allar vísindagreinar eru kynntar á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi.

Vefsíða Vísindavöku Rannís 


Vísindakaffi

Í tengslum við Vísindavöku býður Rannís almenningi upp á Vísindakaffi til að kynnast áhugaverðum viðfangsefnum vísindanna og fá tækifæri til að hitta vísindafólkið sjálft.

Myndband frá Vísindavöku 2018:

Myndband frá Vísindavöku 2018







Þetta vefsvæði byggir á Eplica