Mats- og úthlutunarferlið
- Umsóknarfrestur er einu sinni á ári. Umsóknum skal skilað á
rafrænu formi í gegnum vefsíðu Rannís. Veitt verða vilyrði fyrir styrk með
fyrirvara um að skilyrði séu uppfyllt. Forsenda styrkveitingar er að fyrir
liggi staðfestur náms- eða starfsþjálfunarsamningur.
- Hver umsókn getur tekið til heils
árs, en mest er hægt að sækja um styrk fyrir 48 vikur á hvern
einstakling í vinnustaðanámi yfir árið.
Starfsnámið sem um ræðir verður að rúmast innan almanaksársins.
- Styrkir verða greiddir út í heilu lagi eftir að vinnustaðanámi er lokið og staðfest hefur verið að umsóttar vikur hafi verið unnar á árinu.