Spurt og svarað

Vinsamlegast hjálpið okkur að uppfæra þessa síðu um „spurt og svarað“. Sendið okkur línu ef þið eruð með spurningu almenns eðlis og finnið ekki svar við henni hér eða fannst svarið ekki nógu skýrt.

svidslistasjodur@rannis.is

Hverjir geta sótt um og hlutverk sviðslistajóðs?

  • Atvinnusviðslistahópar. Aðrir lögaðilar (t.d. framleiðslufyrirtæki) geta sótt um fyrir atvinnusviðslistahópa. 
  • Hlutverk sviðslistasjóðs er að efla íslenskar sviðslistir og standa straum af öðrum verkefnum sem falla undir hlutverk og starfsemi á sviði sviðslista með úthlutun fjár úr sjóðnum til atvinnuhópa

Má sækja um á ensku? 


Hvaða vafra á að nota?

  • Fyrir Windows notendur er mælt með Google Chrome. Fyrir Mac er mælt með nýjum útgáfum af Safari.
  • Ekki er mælt með því að nota Internet Explorer eða Microsoft Edge.
  • Hafið ekki tvær umsóknir opnar samtímis.

Hvernig er umsóknarkerfið?

  • Notast er við rafræn skilríki eða íslykil.
  • Umsókn verður ekki gild fyrr en ýtt er á „senda inn“ á lokasíðu umsóknarformsins. Þar er hægt að skoða umsókn í pdf skjali.
  • Vistið eftir hvert skref (síðu) í umsóknarforminu.
  • Ef farið er út úr umsókn er hægt að fara inn aftur á mínum síðum. „Umsóknir í vinnslu“ er fremst þegar komið er inn á mínar síður.
  • Umsóknarblaðið leiðir umsækjanda áfram og margir reitir eru skyldureitir – úthlutanir fyrri ára koma sjálfkrafa fram á kt. styrkþega.
  • Aðgang að umsóknarkerfinu er að finna á forsíðu sjóðsins.

Hver er umsóknarfrestur? Get ég lent í vandræðum á lokadegi.

  • Umsóknarfrestur er til 2. október kl 15:00 árið 2023.
  • Eindregið er mælt með að sækja um með góðum fyrirvara og forðast tímaþröng á síðasta degi.
  • Á lokadegi getur kerfið verið þungt í vöfum vegna álags og hugsanlega leitt til vandræða við frágang umsóknar.
  • Ef umsækjandi er að senda umsókn á síðustu stundu og lendir í tæknilegum vandræðum tengdum umsóknarkerfi Rannís þarf að TILKYNNA það með tölvupósti ÁÐUR EN UMSÓKNARFRESTI LÝKUR og helst að láta skjáskot sem sýna vandamálið fylgja með. Kvartanir um tæknileg vandamál sem berast eftir að umsóknarfrestur er liðinn verða ekki teknar til greina. 
  • Vandamál ótengd umsóknarkerfi Rannís eru að öllu jöfnu ekki tekin til greina og vísað til þess að opið er fyrir umsóknir í 6 vikur eða lengur. Tilkynningar um slík vandamál sem berast eftir umsóknarfrest eru ekki teknar til greina.

Fylgigögn – hvernig á að skila þeim?

  • Fylgigögn verða að koma með umsókninni í gegnum umsóknarkerfið.
  • Ekki er tekið á móti fylgigögnum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Ég get ekki sent umsóknina inn

  • Á lokasíðu (6.2) kemur ef við á listi yfir villur í umsókn. Ef það kemur tilkynning um villu þarf að fara á þá síðu og uppfæra.
  • Ef eitthvað annað er að hindra sendingu hafðu þá samband í síma 5155838 eða 5155839
  • Ef umsækjandi er að senda umsókn á síðustu stundu og lendir í tæknilegum vandræðum tengdum umsóknarkerfi Rannís þarf að TILKYNNA það með tölvupósti ÁÐUR EN UMSÓKNARFRESTI LÝKUR og helst að láta skjáskot sem sýna vandamálið fylgja með.
  • Vandamál ótengd umsóknarkerfi Rannís eru ekki tekin til greina og vísað til þess að opið er fyrir umsóknir í 6 vikur eða lengur. 

Hvernig veit ég að umsókn mín er móttekin?

  • Skoða innsendar umsóknir á mínum síðum. Farið inn á Mínar síður og þar í Umsóknir > Innsendar. Sé umsóknin þar er hún móttekin. Einnig er hægt að skoða PDF útgáfu þar.

Hvenær get ég átt von á svari?

Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir um miðjan janúar. Allir umsækjendur fá svör. Úthlutun mun einnig birtast á síðu Rannís/sviðslistasjóði, og síðu Menningarráðuneytis. 

Merki/lógó Sviðslistasjóðs 

Sviðslistasjóður er ekki með eigið merki/lógó. Ef nota á mynd þegar vísað er til stuðnings úr sviðslistasjóði á að nota merki menningarráðuneytis.  

Áfanga- eða lokaskýrsla

  • Hafi umsækjandi fengið styrk áður, skal skila áfanga- eða lokaskýrslu ef við á, fyrir umsóknarfrest. Annars verður umsókn ekki tekin til umfjöllunar.
  • Nánari upplýsingar um framvinduskýrslu hér .

Sviðslistasjóður og launasjóður listamanna – tengjast þeir?

  • Já.
  • Umsókn í sviðslistasjóð getur falið í sér umsókn í launasjóð sviðslistafólks fyrir þátttakendur verkefnis.  
  • Aðeins er skilað einni umsókn fyrir hópinn/verkefnið.

Hvernig er sviðslistaráð skipað?

Ráðherra skipar þriggja manna sviðslistaráð til þriggja ára í senn . Fagfélög innan Sviðslistasambands Íslands tilnefna tvo fulltrúa í ráðið en ráðherra skipar einn fulltrúa án tilnefningar og skal hann vera formaður. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica