Sviðslistasjóður
svidslistasjodur(hja)rannis.is
Hvert er markmiðið?
Alþingi veitir árlega fé í fjárlögum til stuðnings sviðslistasjóði með það að markmiði að efla sviðslistir og búa þeim hagstæð skilyrði.
Hvað er styrkt?
Veittir eru styrkir til einstakra verkefna atvinnusviðslistahópa. Umsókn í sviðslistasjóð getur einnig gilt sem umsókn til listamannalauna ef tilgreint í umsóknarformi. Sviðslistaráð úthlutar styrkjum til stuðnings atvinnusviðslistahópum, sbr. lög um sviðslistir 2019 nr. 165 .
Lokaskýrsla/greinargerð
Hafi umsækjandi áður fengið styrk af fjárveitingu til starfsemi atvinnuleikhópa skal það vera ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir afgreiðslu nýrrar styrkumsóknar að fyrir liggi greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins. Sviðslistaráð getur kallað eftir frekari upplýsingum vegna umsóknar ef nauðsyn krefur.
Hlutverk Rannís
Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvar Íslands, Rannís, er að sjá um umsýslu sviðlistasjóðs fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis.
tilkynning
Vegna umsóknarfrest í sviðslistasjóð og launasjóð sviðslistafólks 16. maí 2022, kl 15:00. Þeir 50 mánuðir sem eru til úthlutunar úr launasjóði eru eingöngu fyrir sviðslistafólk 35 ára og yngra. Af því leiðir að lögð verður áhersla á að styðja verkefni með ungu sviðslistafólki.Nytsamir tenglar
Nánari upplýsingar
-
Óskar Eggert Óskarsson, s. 515 5839
-
Ragnhildur Zoëga, s. 515 5838
-
Tekið er á móti fyrirspurnum á svidslistasjodur(hja)rannis.is