Innviðasjóður
Kynningarmyndband um Innviðasjóð.
Hvert er markmiðið?
Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Markmiðið með sjóðnum er að efla innlendar vísindarannsóknir með því að skapa nýja möguleika til rannsókna með fjármögnun tækjabúnaðar/aðstöðu sem ekki er aðgengileg nú þegar.
Hvað er styrkt?
Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.
Innviðasjóður veitir eftirfarandi styrktegundir:
1. Tækjakaupastyrki
2. Uppbyggingarstyrki
3. Uppfærslustyrki
4. Aðgengisstyrki
5. Innviði á vegvísi
Skilyrði úthlutunar
Gert er ráð fyrir að umsækjandi leggi til mótframlag að lágmarki 25%.
Framlag Innviðasjóðs skal að lágmarki vera 2 milljónir króna fyrir Tækjakaup, Uppbyggingu, Uppfærslu eða viðhalds. Ekkert lágmark er á Aðgengisstyrk.
Vinsamlegast kynnið ykkur reglur Innviðasjóðs áður en sótt er um.
Upplýsingafundur 7. maí 2020
Nytsamir tenglar
- Handbók Innviðasjóðs 2023
- Vegvísir um rannsóknarinnviði 2021
- Handbók Innviðasjóðs vegna rannsóknarinnviða á vegvísi 2020
- Úthlutunarstefna fyrir Innviðasjóð 2021
- Reglugerð um ýmis tollfríðindi
- Skýrsla verkefnahóps Vísinda- og tækniráðs um rannsóknarinnviði og vöktun apríl 2016
-
Drög að ferli vegvísis um rannsóknarinnviði og úthlutunarstefnu Innviðasjóðs
- Danskur vegvísir um rannsóknarinnviði
- Finnskur vegvísir um rannsóknarinnviði