Viðurkenning fyrir nýsköpun í opinberum rekstri 2015

Geðheilsustöðin í Breiðholti hlaut nýsköpunarverðlaunin 2015 í opinberri þjónustu og stjórnsýslu, sem afhent voru þann 23. janúar á ráðstefnu á Grand hótel Reykjavík.

""Verðlaunin voru að þessu sinni afhent í fjórða sinn og voru um 50 verkefni tilnefnd. Ráðstefnan var haldin á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.

Verkefni velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sem bar sigur úr býtum nefnist „Geðheilsustöðin í Breiðholti“. Með Geðheilsustöðinni er ætlunin að veita fullorðnum einstaklingum sem greinst hafa með geðraskanir heildræna þjónustu og draga með því m.a. úr innlögnum á geðsvið Landspítalans.

Fimm önnur verkefni fengu sérstakar viðurkenningar fyrir nýsköpun. Það voru Hafnarfjarðarkaupstaður fyrir „Áfram: Ný tækifæri í Hafnarfirði“, Reykjavíkurborg fyrir „Næringarútreiknaðir matseðlar, örútboð og matarsóun“, Langanesbyggð vegna Grunnskólans á Bakkafirði fyrir „Vinnustofur- Fjölbreyttir kennsluhættir og nýsköpun“, Embætti landlæknis og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins fyrir „Veru: Öruggur rafrænn aðgangur að mínum heilbrigðisupplýsingum“ og Seltjarnarnesbær fyrir „Ungmennaráð Seltjarnarness“.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica