Nýsköpunarþing 2016

Nýsköpunarþing 2016 var haldið að Grand hótel Reykjavik, fimmtudaginn 7. apríl kl. 8:30-11:00. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2016 voru afhent á þinginu.

Yfirskrift þingsins að þessu sinni var: Nýsköpun í starfandi fyrir­tækjum - Tæki­færi í samvinnu?

 

 

 


Dagskrá:

  • Ávarp. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
  • Vísindin vekja viðskiptin. Erna Sif Arnardóttir, PhD, forstöðumaður svefnmælinga, LSH og
    Sveinbjörn Höskuldsson, þróunarstjóri, Nox Medical.
  • Að leysa úr álinu. Karl Ágúst Matthíasson, stofnandi og eigandi DTE og Gauti
    Höskuldsson, framkvæmdastjóri kerskála, Norðurál.
  • Jarðhiti í lykilhlutverki. Valdimar Hafsteinsson forstjóri, Kjörís og Sören Rosenkilde, eigandi
    og stofnandi Norðursalt.
  • Fljúgandi start. Svavar Svavarsson, deildarstjóri viðskiptaþróunar, HB Grandi og Helgi
    Hjálmarsson, framkvæmdastjóri, Valka.
  • Pallborðsumræður.
  • Tónlistaratriði. Glowie.
  • Nýsköpunarverðlaun Íslands 2016 afhent.

Fundarstjóri var Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem  stýrði einnig pallborðsumræðum ásamt Helgu Valfells, framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs.

Húsið opnaði klukkan 8:00 með morgunverði. 

Skráning á http://www.nmi.is/um-okkur/vidburdir/nyskoepunarthing-2015/ eða í síma 522-9000

Sækja dagskrá í pdf








Þetta vefsvæði byggir á Eplica