Nýsköpunarþing 2025
Rannís, Hugverkastofan, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóðurinn Kría buðu til Nýsköpunarþings 2025 í Grósku 30. október.
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025 voru veitt á þinginu.
Hvað hefur Ísland fram að leggja í nýsköpun á alþjóðlegum markaði og hvernig geta óvæntar vendingar í alþjóðamálum haft áhrif á sókn íslenskra nýsköpunarfyrirtækja erlendis?
Íslensk nýsköpunarfyrirtæki mæta ýmsum hindrunum á vegferð sinni á erlendum mörkuðum. Að ná fótfestu á nýjum markaði getur reynst flóknara en áætlanir gera ráð fyrir og óvæntar vendingar í alþjóðamálum geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Hvernig hefur þróun alþjóðamála áhrif á íslensk nýsköpunarfyrirtæki og framtíð þeirra og geta þau með einhverjum hætti varið sig eða jafnvel skapað ný tækifæri? Í þessu samhengi er nærtækt að horft til Bandaríkjanna og þeirra áhrifa sem hækkun innflutningstolla hefur á íslensk nýsköpunarfyrirtæki.
Í lok þingsins veitti Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025.
Dagskrá
- 14:00 – Setning Nýsköpunarþings
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
- 14:10 – Allt í sóma í Oklahóma
- Svanhildur Hólm, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.
- 14:40 - Einkaleyfisumsóknir íslenskra fyrirtækja 2004 - 2024:
- Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar
- 14:50 – Ísland í stóru myndinni (Pallborð)
- Tanya Zarov, aðstoðarforstjóri Alvotech
- Erla Skúladóttir, stjórnarformaður Lauf Cycles (Nýsköpunarfyrirtæki ársins 2021)
- Sveinn Sölvason, forstjóri og framkvæmdastjóri Embla Medical
- Lóa Fatou Einarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Good Good
-
15:20 - Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: Freyr Eyjólfsson

