Nýsköpunarverðlaun Íslands

  • Carbfix-nyskopunarverdlaun-2024
  • Nyskopunarthing1

Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt árlega á Nýsköpunarþingi.

Verðlaunin eru veitt til fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rannsóknar- og nýsköpunarstarfi og náð hefur árangri á markaði. Tilgangur verðlaunanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingaröflunar og aukinnar verðmætasköpunar í atvinnulífinu. Verðlaunagripurinn er stytta af frjósemisgoðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara.

Handhafar Nýsköpunarverðlauna Íslands

Verðlaunagripurinn

Freyr-nyskopunarverdlaun-Islands

Hallsteinn Sigurðsson myndhöggvari er höfundur verðlaunagripsins sem er höggmynd af goðinu Frey, guði frjósemi og jarðargróðurs. Norræn goðafræði hefur lengi verið Hallsteini hugleikin og hefur hann oft sótt hugmyndir þangað við listsköpun sína.

Um Frey segir svo í Snorra-Eddu: „Freyr er hinn ágætasti af ásum. Hann ræður fyrir regni og skini sólar og þar með ávexti jarðar og á hann er gott að heita til árs og friðar. Hann ræður fésælu manna." Freyr var guð landbúnaðar og frjósemi manna og dýra. Hann virðist hafa verið tignaður næst á eftir Þór.

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025

Sendu okkur tilnefningu um fyrirtæki sem þú telur að eigi að hljóta Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025, með því að fylla út formið hér fyrir neðan. Verðlaunin verða afhent á Nýsköpunarþingi þann 30. október næstkomandi.

Smelltu hér til að opna skráningarformið í nýjum glugga








Þetta vefsvæði byggir á Eplica