Creative Europe Menning
Metþátttaka í umsóknum frá íslenskum aðilum um samstarfsverkefni.
Sex íslenskir verkefnisstjórar sóttu um í Creative Europe samstarfsverkefni í maí sl. og að auki voru tuttugu og fimm íslenskir þátttakendur í umsóknum sem stýrt er af evrópskum félögum.
Verkefni þurfa að byggja á minnst 3 landa samstarfi og hægt er að sækja um frá 200.000 evrum allt að 2.000.000 evra og fer eftir umfangi og fjölda þátttökulanda í verkefni. Umsóknarfrestur er einu sinni á ári.
Sem fyrr eru áherslur framkvæmdastjórnar, inngilding, sjálfbærni og grænar áherslur, rafræn umskipti.
Metfjöldi umsókna barst á Evrópuvísu eða rúmlega 1600 umsóknir og má því búast við að samkeppnin verði hörð.