Culture Moves Europe styrkir til lista- og menningarfólks og listasmiðja
Markmið ferða er að kynna sér evrópskan menningararf til frekari sköpunar og koma á tengslum við evrópska félaga. Um er að ræða óformlegt nám.
Skilyrði: Að íbúi sé frá þátttökulandi Creative Europe. Einungis er hægt að fá styrk einu sinni í Culture Moves Europe. Úkraínubúar geta sótt um rafræna ferð. Sótt er um ferð á einn áfangastað og ferð farin innan árs. Umsókn skal vera á ensku.
Eftirfarandi menningar- og listasvið eru styrkt: Arkitektúr, menningararfur, hönnun, myndlist bókmenntaþýðingar, tónlist og sviðslistir.
Ferðastyrkur er 350 evrur og styrkur á dag er 75 evrur. Ef við á er barnastyrkur veittur 100 evrur dag óháð fjölda barna.
Lengd ferða – námsdvalar: Einstaklingar geta sótt um dvöl frá 7-60 daga. Allt að fimm manna hópar geta sótt um dvöl frá 7-21 dag.
Styrkir til listasmiðja til veita listamönnum móttöku: Veittir eru styrkir til að taka á móti 5 listamönnum eða menningarstarfsmönnum til að dvelja frá 22 dögum allt að 180 dögum. Listasmiðjur fá 35 evrur á dag fyrir móttöku en listamenn 25 evrur á dag. Ferðastyrkir eru 350 evrur.