Horizon Europe styrkjamöguleikar fyrir skapandi greinar
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Horizon Europe, rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB, fyrir árið 2025.
Listir, menning og skapandi greinar eru meðal umfjöllunarefna t.d. innan Klasa 2 (Culture, Creativity and Inclusive Society), með umsóknarfrest 16. september, eða New European Bauhaus hluta áætlunarinnar, með umsóknarfrest 12. nóvember.
Um er að ræða stór samstarfsverkefni a.m.k. þriggja þátttökulanda. Fyrir frekari spurningar og ráðgjöf skal leita til Sigrúnar Ólafsdóttur: sigrun.olafsdottir@rannis.is
Aðrir styrkjarmöguleikar fyrir skapandi greinar:
COST áætlunin hefur ýmsa möguleika innan skapandi greina. Í maí voru auglýst 70 ný COST verkefni sem hægt er að sækja um þátttöku í. Þar eru þrjú verkefni á sviði skapandi greina:
- Global network on Culture Heritage Conservation Under Climate Change
- Cultural Property Protection for All
- Cultural Heritage in Crisis. Transdisciplinary Assessment of Legal and Regulatory Frameworks
Fyrir frekar spurningar og upplýsingar um hvernig sótt er um skal leita til Bylgju Valtýsdóttir: bylgja.valtysdottir@rannis.is
Hægt er að kynna sér fleiri styrkjamöguleika fyrir skapandi greinar í bæklingi sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gaf út: