MEDIA: Úthlutanir ársins 2020

15.12.2020

Núverandi tímabil Creative Europe (2014-2020) er brátt á enda. Í MEDIA hlutanum er árangur Íslendinga framúrskarandi. Rúmur 1,1 milljarður ISK hefur runnið til íslenskrar kvikmyndagerðar á undanförnum sex árum.

Árið 2020 er það allra gjöfulasta í evrum talið frá því að Íslendingar hófu þátttöku í MEDIA áætluninni árið 1992. 

Úthlutað hefur verið 2.292.116 € eða um 380 milljónum ISK á árinu til íslenskra verkefna og fyrirtækja og er það einstakur árangur á tímum heimsfaraldurs.

Íslenskar kvikmyndir hafa átt góðu gengi að fagna um árabil og á síðustu árum eru íslenskar sjónvarpsþáttaraðir orðnar eftirsóttar hjá sjónvarpsstöðvum í Evrópu og á streymisveitum. Það er gaman að sjá hve íslenskir kvikmyndagerðarmenn og verk þeirra eru vel metin á alþjóðamarkaði.

Á árinu voru sendar inn 26 umsóknir og fengu 17 þeirra úthlutun sem telst til 65% árangurshlutfalls og er það bæði fréttnæmur og gleðilegur árangur.

Styrkir skiptust á eftirfarandi hátt:

Dreifingarstyrkur
Kvikmyndin “Dýrið” sem Valdimar Jóhannson leikstýrir fékk 517.332€ dreifingarstyrk til sýninga í 21 aðildarríki í MEDIA. Kvikmyndin er í eftirvinnslu og verður frumsýnd á næsta ári ef baráttan við veiruna vinnst.

Styrkir til framleiðslu á sjónvarpsefni
Fjórar íslenskar umsóknir bárust í sjónvarpssjóð MEDIA og fengu þrjár þeirra úthlutun samanlagt 1.471.000€:

  • Evrópa kvikmyndir /Vesturport fékk 500.000 € styrk, fyrir sjónvarpsþáttaröðina “Verbúð /Blackport. 
  • Glassriver fékk 482.000 € styrk fyrir sjónvarpsþáttaröðina Brotin/ Fractures
  • Sagafilm fékk 489.065 € styrk fyrir þáttaröðina Systrabönd


Undirbúnings- og framleiðslustyrkir til kvikmynda
Samtals voru sendar inn 11 umsóknir og fengu fjórar þeirra úthlutun samtals 175.000€

  • Zikzak fyrir kvikmyndina “Afturelding (Backfire)”, 
  • Hreyfimyndasmiðjan fyrir kvikmyndina “Vera and the Third Stone” og 
  • Netop fyrir kvikmyndina “Northern Comfort”. 

Hvert þeirra fær 50.000€ í þróunarstyrk. 

  • Fimp ehf. fær 25.000€ styrk fyrir heimildamyndina Varado – The Curse of Gold.


Styrkir til kvikmyndahátíða
Á fyrsta skilafresti fór ein íslensk umsókn og fékk úthlutun uppá 55.000€, en það var kvikmyndhátíðin RIFF 2020.

Styrkir til að sýna evrópskar myndir á Íslandi
Á seinni skilafresti í valkerfi dreifingar, fengu íslenskir dreifendur styrki að upphæð 23.647€ til að sýna 5 evrópskar kvikmyndir. Þær eru:

  • Été 85 leikstóri Francois Ozon frá Frakklandi, 
  • Nowhere Special leikstjóri Umberto Pasolini frá Ítalíu 
  • Charlatan leikstjóri Agnieszka Holland frá Slóvakíu, 
  • Druk leikstjóri Thomas Vinterberg frá Danmörku og 
  • Supernova leikstjóri Harry Macqueen frá Írlandi


Sjálfvirkir bíómiðastyrkir fyrir sýningu á evrópskum kvikmyndum á Íslandi

  • Myndform fékk úthlutað 32.748€.
  • Bíó Paradís/Heimili kvikmyndanna fékk 5.324€ og einnig 12.000€ styrk frá Europa Cinemas.


Ein íslensk umsókn var send inn í slate funding/þróunarpakka en var hafnað.

Sjá einnig í desember 2020 fréttabréfi Creative Europe ásamt öðrum upplýsingum.   








Þetta vefsvæði byggir á Eplica