Miðstöð evrópskra tungumála

European Centre for Modern Languages

Fyrir hverja?

Kennara og starfsmenn sem koma að tungumálakennslu á öllum stigum.

Til hvers?
Stuðningur við nám og kennslu í tungumálum, t.d. styrkir til að sækja námskeið og vinnustofur.

Umsóknarfrestur 
Það eru engir umsóknarfrestir heldur er alltaf opið fyrir umsóknir. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Miðstöðvar evrópskra tungumála.

Hvert er markmiðið?

Miðstöð evrópskra tungumála ( European Centre for Modern Languages - ECML ) er stofnun á vegum Evrópuráðsins sem er staðsett í Graz, Austurríki. Hlutverk Tungumálamiðstöðvarinnar er að efla og styðja við nám og kennslu í tungumálum í Evrópu. Starfsemi tungumálamiðstöðvarinnar felst m.a. í skipulagningu námskeiða og vinnustofa í Graz og víðar. Einnig er á vegum stofnunarinnar unnið að margvíslegum þróunar- og rannsóknarverkefnum á sviði tungumálanáms og tungumálakennslu í tengslum við vinnustofur og námskeið. Aðildarlönd geta almennt sent einn þátttakanda á hvert námskeið (vinnustofu) sér að kostnaðarlausu.

Vinnuáætlun 2024-2027

Tímabilið 2024-2027 er tileinkað Tungumálakennslu sem grunni að lýðræði (Language Education at the Heart of Democracy). Miðstöð evrópskra tungumála hefur alltaf fylgst að með nýjum áherslum í tungumálakennslu í aðildarlöndum hennar, en einnig forgangsröðun Evrópuráðsins í menntamálum varðandi menntun án aðgreiningar og mannréttindi og lýðræði, þar sem þróun tungumálakunnáttu og menningarlegrar færni leikur lykilhlutverk. Boðið verður upp á fjölmargar vinnustofur og verkefni á tímabilinu. 

Nánari upplýsingar um áhersluatriði tímabilsins 2024-2027 og margt fleira má finna á vef Miðstöðvar evrópskra tungumála.

Hlutverk Rannís

Rannís er tengiliður (Contact Point) Miðstöðvar evrópskra tungumála á Íslandi. Hlutverk Rannís er að veita upplýsingar um starfsemi stofnunarinnar. Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands sér um að velja þátttakendur á vinnustofur. Tengiliður HÍ (Nominating Authority) er Eyjólfur Már Sigurðsson  Eyjólfur Már Sigurðsson

Sjá nánari upplýsingar á vef Miðstöðvar evrópskra tungumála.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica