Rafrænn kynningarfundur um Nordplus

25.11.2022

Nordplus er stærsta menntaáætlun Norðurlandanna og inniheldur fimm undiráætlanir á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi, fullorðinsfræðslu, á háskólastigi, á sviði tungumála Norðurlandanna og svo áætlun sem vinnur þvert á skólastig. Næsti umsóknarfrestur um verkefnastyrk er 1. febrúar 2023 og því verður haldinn kynningarfundur á Teams þann 7. desember 2022 kl. 15:00-16:00. 

Á fundinum verða kynnt öll þau tækifæri sem Nordplus býður upp á. Ef þið hafið í huga að sækja um styrk eða viljið heyra meira um umsóknarferlið fyrir verkefni þá er tilvalið að taka þátt og spyrja allra þeirra spurninga sem þið hafið. Starfsfólk Nordplus verður á staðnum, segir frá umsóknarferlinu og gefur góð ráð varðandi verkefnin.

Viðburðurinn er opinn fyrir öll en við biðjum ykkur um að skrá ykkur með því að smella á hnappinn fyrir neðan. 

Skráðu þig hér 

Nánari upplýsingar veitir Eydís Inga Valsdóttir, umsjónarmaður Nordplus norrænu tungumálaáætlunarinnar, eydis@rannis.is 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica