Úthlutun Nordplus 2022

10.5.2022

Úthlutað hefur verið úr Nordplus áætluninni tæplega 9,9 milljónum evra til 305 verkefna og samstarfsneta sem hefjast árið 2022.  Alls barst 371 umsókn um styrk upp á samtals 16,2 milljónir evra.

Rannís hefur umsjón með  Nordplus á Íslandi  sem skiptist í fimm undiráætlanir og er einnig umsýsluaðili fyrir tungumálahlutann.

Umsóknum fjölgaði frá því í fyrra, frá 331 umsókn í 371 umsókn, eða um 9%. Íslenskum stofnunum gekk almennt vel, en Ísland átti um 8% umsóknanna. 

Nordplus er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og veitir styrki til samstarfs innan Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna á öllum stigum menntunar til að efla tengslanet, verkefnasamstarf, auka hreyfanleika nemenda og kennara á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Styrkir eru einnig veittir þvert á skólastig og fyrir verkefni sem styrkja stöðu og miðla tungumálum Norðurlandanna. 

Nánari upplýsingar um úthlutunina er að finna á heimasíðu Nordplus, www.nordplusonline.org








Þetta vefsvæði byggir á Eplica