Úthlutun Nordplus 2023

3.5.2023

Úthlutað hefur verið úr Nordplus áætluninni rúmlega 12,7 milljónum evra til 340 verkefna og samstarfsneta sem hefjast árið 2023. Alls bárust 499 umsóknir um styrk upp á samtals rúmlega 27,1 miljón evra. 

  • Laerer-med-boern

Rannís hefur umsjón með  Nordplus á Íslandi  sem skiptist í fimm undiráætlanir og er einnig umsýsluaðili fyrir tungumálahlutann.

Umsóknum fjölgaði frá því í fyrra, frá 371 umsókn í 499 umsókn, eða um 35%. Íslenskum stofnunum gekk almennt vel, en Ísland átti um 8% umsóknanna.

Nordplus er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og veitir styrki til samstarfs innan Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna á öllum stigum menntunar til að efla tengslanet, verkefnasamstarf, auka hreyfanleika nemenda og kennara á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Styrkir eru einnig veittir þvert á skólastig og fyrir verkefni sem styrkja stöðu og miðla tungumálum Norðurlandanna.

Nánari upplýsingar um úthlutunina er að finna á heimasíðu Nordplus, www.nordplusonline.org








Þetta vefsvæði byggir á Eplica