Velkomin á Nordplus Café

13.8.2025

Þann 26. ágúst 2025 kl. 12:00 verður haldinn rafrænn upplýsingafundur um styrki til undirbúningsheimsókna í Nordplus Junior, Nordplus Voksen og Nordplus Sprog. Fundurinn er ætlaður þeim sem ætla að sækja um styrk til að undirbúa verkefni. 

  • Nordplus-cafe-mynd-med-frett

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 26. ágúst 2025 kl.11:00 að íslenskum tíma og þarf verður farið í gegnum allt sem þarf að hafa í huga varðandi úthlutun á styrkjum til undirbúningsheimsókna í Nordplus. En umsóknarfrestur um styrki fyrir undirbúningsheimsóknir er til 1. október 2025. 

Ef þið hafið í huga að sækja um styrk til undirbúningsheimsókna eða viljið heyra meira um umsóknarferlið fyrir verkefni þá er tilvalið að taka þátt og spyrja allra þeirra spurninga sem þið hafið. Starfsfólk Nordplus verður á staðnum, segir frá umsóknarferlinu og gefur góð ráð varðandi verkefnin.

Hægt er að sækja um styrk fyrir undirbúningsheimsóknir ef verið er að skipuleggja verkefni í Nordplus Junior, Nordplus Voksen og í Nordplus Sprog. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Nordplus.

Nauðsynlegt er að skrá sig en opið er fyrir skráningar til og með föstudagsins 22. ágúst 2025.

Skrá mig á Nordplus Café

Ef þið hafið einhverjar spurningar þá má alltaf hafa samband við starfsfólk Nordplus á Íslandi: Senda póst








Þetta vefsvæði byggir á Eplica