2011-2012

34 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2011-2012.

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2011-2012. Sprotasjóður hefur það hlutverk að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga.

Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:

  • Siðfræði og gagnrýnin hugsun
  • Skapandi nám: Nýsköpun í námsumhverfinu

Umsóknarfrestur var til 28. apríl sl. og bárust 127 umsóknir að þessu sinni. Stjórn sjóðsins mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Í stjórninni eru fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti. Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að tillögu stjórnar, að veita styrki til 34 verkefna að upphæð rúmlega 44. millj. kr.

Yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk úr Sprotasjóði fyrir skólaárið 2011-2012.

Styrkirnir dreifðust með eftirfarandi hætti milli skólastiga og landshluta:

Sprotasjodur_uthlutun_2011-2012








Þetta vefsvæði byggir á Eplica