2014-2015

37 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2014-2015.

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2014-2015. Alls bárust 124 umsóknir til sjóðsins og var heildarupphæð umsókna rúmar 259 millj. kr. Veittir voru styrkir til 37 verkefna að upphæð tæplega 50 millj. kr.

Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:

  • Árangursríkt læsi alla skólagönguna: Að skilja og nýta upplýsingar á fjölbreyttan hátt
  • Verklegir kennsluhættir á öllum námssviðum og mat á hæfni nemenda
  • Afburðanemendur

Stjórn sjóðsins, sem skipuð er fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti, mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Ákveðið var, eins og áður sagði, að veita styrki til 37 verkefna að upphæð tæplega 50 millj. kr.

Yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk fyrir skólaárið 2014-2015.

Styrkirnir dreifðust með eftirfarandi hætti milli skólastiga og landshluta:

Sprotasjodur_uthlutun_2014-2015








Þetta vefsvæði byggir á Eplica