2015 - 2016

45 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2015-2016.

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2015-2016. Alls bárust 172 umsóknir til sjóðsins og var heildarupphæð umsókna rúmar 360 millj. kr. Veittir voru styrkir til 45 verkefna að upphæð rúmlega 49 millj. kr.

Sprotasjóður er sameiginlegur fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er hlutverk sjóðsins að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:

  • Ábyrgð á eigin námi: Styrkleikar nemenda og áhugasvið
  • Hagnýtt læsi á öllum námssviðum
  • Fjölmenningarlegt skólastarf
  • Annað

Stjórn sjóðsins sem skipuð er fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti. Stjórnin mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Ákveðið var, eins og áður sagði, að veita styrki til 45 verkefna að upphæð rúmlega 49 millj. kr.

Yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk fyrir skólaárið 2015-2016.

Styrkirnir dreifðust með eftirfarandi hætti milli skólastiga og landshluta:

Sprotasjodur_uthlutun_2015-2016








Þetta vefsvæði byggir á Eplica