2016 - 2017

38 verkefni hlutu styrk úr Sprotasjóði skólaárið 2016-2017.

Úthlutað hefur verið úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fyrir skólaárið 2016-2017. Alls bárust 129 umsóknir til sjóðsins og var heildarupphæð umsókna rúmar 300 millj. kr. Veittir voru styrkir til 38 verkefna að upphæð rúmlega 60. millj. kr.

Áherslusvið sjóðsins voru að þessu sinni:

  • Frumkvöðla- og nýsköpunarmennt
  • Nemendur af erlendum uppruna
  • Námsmat á mörkum skólastiga

Stjórn sjóðsins, sem skipuð er fulltrúum frá Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samstarfsnefnd háskólastigsins og mennta- og menningarmálaráðuneyti, mat umsóknir og gerði tillögur til mennta- og menningarmálaráðherra um styrkveitingar. Ákveðið var, eins og áður sagði, að veita styrki til 38 verkefna að upphæð rúmlega 60. millj. kr.

Yfirlit yfir þau verkefni sem hlutu styrk 2016-2017.

Styrkirnir dreifðust með eftirfarandi hætti milli skólastiga og landshluta:

Sprotasjodur_uthlutun_2016-2017








Þetta vefsvæði byggir á Eplica