Uppbyggingarsjóður EES

EEA Grants

Fyrir hverja?

Stofnanir, háskóla, skóla, fyrirtæki, sveitarfélög, félagasamtök, stúdenta og kennara, menningarstofnanir o.fl.

Til hvers?

Samstarf á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar við viðtökuríki sjóðsins.

Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestir eru auglýstir í hverju viðtökulandi fyrir sig og þá eftir sviðum. Enn er unnið að samningum í þátttökulöndum Uppbyggingarsjóðsins við gjafaríkin Noreg, Ísland og Liechtenstein. Væntanlega verða fyrstu köll auglýst í Póllandi að vori 2026.

Sjá lista yfir opna umsóknarfresti

Uppbyggingarsjóður EES á Íslandi - þátttaka íslenskra aðila 2024-2021

Hvert er markmiðið?

Uppbyggingarsjóður EES (áður Þróunarsjóður EFTA) var stofnaður í þeim tilgangi að vinna gegn efnahags- og félagslegum mismun í þeim ríkjum sem aðstoðina þiggja. Heildarupphæð sem varið var til styrkja á árunum 2014 - 2021 var 1,5 milljarður evra. Samhliða Uppbyggingarsjóði EES starfrækja Norðmenn sérsjóð sem nam 1,3 milljarði evra.

Heildarupphæð sem varið verður til styrkja á árunum 2021 - 2028 er 1,8 milljarður evra. 

Hverjir geta sótt um?

Hvert viðtökuríki setur fram og rekur sína áætlun. Það þýðir að formlega verða fyrirtæki og stofnanir í þessum löndum að vera í forsvari fyrir umsókn um styrk til stjórnvalda í sínu landi. Í samræmi við stefnuskrá sjóðsins er skilyrði fyrir styrkveitingu að verkefnið sé a.m.k. tvíhliða, þ.e. þátttaka stofnana frá einu eða fleirum EFTA ríkja er skilyrði. Tekið skal fram að kostnaður stofnana frá EFTA ríkjum er greiddur í samræmi við þátt þeirra í verkefnunum og verðlag í viðkomandi ríki.

Hvað er Uppbyggingarsjóður EES?

Uppbyggingarsjóður EES er fjármagnaður af stjórnvöldum Noregs, Íslands og Liechtenstein. Markmið sjóðsins er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði innan Evrópska efnahagssvæðisins og efla tvíhliða samstarf milli EFTA ríkjanna innan EES og fimmtán viðtökuríkja sjóðsins í Evrópu.

Uppbyggingarsjóður EES starfar í sjö ára tímabilum.

Sjá nánar á vef Uppbyggingarsjóðs EES









Þetta vefsvæði byggir á Eplica