Fyrsta TextílLab á Íslandi opnar á Blönduósi
Opnunin verður við hátíðlega athöfn þann 21. maí nk. kl. 14:00.
Textílmiðstöð Íslands vinnur að því að verða alþjóðleg miðstöð í
rannsóknum og þróunarstarfsemi í textíl, listum og handverki byggðum á
íslenskum hráefnum, munstrum og textíl. Með opnun TextílLab og síðar
rannsóknaraðstöðu fyrir bíótextíl í samstarfi við BioPol
á Skagaströnd er markmiðið að skapa umhverfi þar sem þekkingar- og
þróunarstarfsemi á sviði ullar- og textílvinnslu getur vaxið og dafnað á
Norðurlandi vestra og Íslandi öllu. Stefnt er að uppbyggingu textílklasa í
tengslum við verkefnið.
Fjölþætt
alþjóðlegt samstarf Textílmiðstöðvarinnar og þátttaka í Horizon2020 verkefninu CENTRINNO næstu þrjú árin leggur
grunn að fjölbreyttum samstarfsverkefnum og þekkingaryfirfærslu.
Markmið
uppbyggingar á TextílLab Textílmiðstöðvarinnar er að:
- Efla textílrannsóknir og auka fagþekkingu í greininni með því endurvekja þann mikilvæga menningararf sem fólginn er í íslenskum textíl og vinnu með hráefni eins og íslensku ullina, og með nútímalegum vinnubrögðum, nýrri tækni og nýsköpun. Sérstök áhersla er lögð á sjálfbærni og samfélagslega sérstöðu íslensks handverks.
- Tryggja öllum þeim, hvort heldur innlendum og erlendum aðilum sem hafa hug á að nýta nútíma framleiðslutækni í bland við hefðbundnar aðferðir, aðgengi að stafrænni tækni og vélum til nýsköpunar og þróunar nýrra textílvara.
- Stuðla að verðmætasköpun, atvinnuuppbyggingu og vöruþróun í tengslum við textíl og stuðla þannig að fjölgun sérhæfðra starfa á landsvísu og að jákvæðri samfélagsþróun og uppbyggingu á hugvits drifnu hagkerfi.
Tekist hefur að fjármagna kaup á stafrænum vefstól, prjónavél og útsaumsvél, nálaþæfingarvél auk laserskera og vínylprentara sem er staðalbúnaður í flestum starfrænum smiðjum með styrk frá Innviðasjóði. Unnið er að frekari fjármögnun til kaupa á fleiri tækjum. Staðið verður fyrir námskeiðum og stuðlað að samstarfi við framhalds- og háskóla um þjálfun nemenda í hönnunartengdu námi á stafræna tækni, hefðbundnu handverki og menningar- og listasögu textíls á Íslandi. Lögð er áhersla á að þróa þekkingu á því hvernig nýta má nútíma framleiðslutækni í bland við hefðbundnar aðferðir þannig að aðgengi að TextílLab leiði til nýsköpunar og þróunar nýrra textílvara.
Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ávörpuðu gesti og klipptu í sameiningu á þráðinn þegar TextílLab var opnað.