Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Horizon Europe

7.9.2023

Upplýsingadagar og tengslaráðstefna verður haldin á vegum framkvæmdastjórnar ESB 26.-28. september nk. í tengslum við vinnuáætlun Horizon Europe á sviði matvælaframleiðslu, lífhagkerfis, náttúruauðlinda, landbúnaðar og umhverfismála.

Á upplýsingadögunum 27. og 28. september verða kynnt  viðfangsefni vinnuáætlunar ársins 2024. Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir umsóknir 17. október 2023 með skilafresti í lok febrúar 2024. 

Væntanlegum umsækjendum gefst þannig tækifæri til að læra meira um fjármögnunarmöguleika samkvæmt nýju vinnuáætluninni en hún inniheldur 75 ný viðfangsefni (topics).

Viðburðurinn verður bæði haldinn á staðnum (Brussel) og sendur út á netinu.  Lokað verður fyrir skráningu á viðburðinn í Brussel þann 18. september næstkomandi.  

Dagskrá upplýsingadags og skráning

Tengslaráðstefna verður haldin 26. september 2023 í Brussel, en á þann viðburð er fullt. 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica