Upplýsingadagar og tengslaráðstefna Horizon Europe
Upplýsingadagar og tengslaráðstefna framkvæmdastjórnar ESB verður haldin 11. til 19. október nk. í tengslum við vinnuáætlun klasa 4, stafræn tækni, iðnaður og geimur (Digital, Industry & Space). Um er að ræða viðburð á netinu.
Upplýsingadagar:
Á upplýsingadögunum 11. -12. október verða kynnt rannsóknar- og nýsköpunarviðfangsefni næstu vinnuáætlunar (e. Work Programme) fyrir árin 2023-2024 í klasa 4 í Horizon Europe.
Væntanlegum umsækjendum gefst þannig tækifæri til að læra meira um fjármögnunarmöguleika samkvæmt nýju vinnuáætluninni.
Tengslaráðstefnur:
Við viljum vekja sérstaka athygli á tengslaráðstefnu sem haldin verður á eftirfarandi dögum:
- 
Stafræn tækni: 16. – 17. október 2023 – Skráning 
- 
Geimur: 18. október - Opnað fyrir skráningu síðar 
- 
Iðnaður: 19. október 2023 - Skráning 
Á tengslaráðstefnunni gefast tækifæri á að koma þér og þinni stofnun/fyrirtæki á framfæri.
Starfsmenn Rannís geta veitt aðstoð við textagerð en mikilvægt er að hafa hnitmiðaðan texta til að einfalda þátttakendum leit að réttum samstarfsaðilum á tengslaráðstefnunni. Sýnileikinn eykur líkurnar á að haft verið samband við viðkomandi með boð um að vera þátttakendur í stórri Evrópusambandsumsókn.
Ef einhverjar spurningar vakna eða þú vilt vita meira, þá getur þú sent línu eða slegið á þráðinn katrin.jonsdottir@rannis.is eða í síma 515 5852
Klasi 4 - stafræn tækni, iðnaður og geimur miðar að því að Evrópa móti samkeppnishæfa og áreiðanlega tækni fyrir evrópskan iðnað með alþjóðlegri forystu á lykilsviðum. Stuðli jafnframt að framleiðslu og nýtingu sem virðir þolmörk jarðarinnar og hámarki ávinninginn fyrir alla hluta evrópsks samfélag í félagslegu, efnahagslegu og svæðisbundnu samhengi.
Klasi 4 hefur eftirfarandi áherslusvið:
- 
Umhverfisvænar og stafrænar framleiðslulausnir 
- 
Sjálfvirkni í virðiskeðju framleiðslu hráefnis til vöru 
- 
Gagna og skammtölvu tækni 
- 
Stafræn tækni sem eykur samkeppnishæfni og er í senn græn 
- 
Opnar og sjálfvirkar geimtæknilausnir sem gagnast innviðum, þjónustum, forritun og gagnamálum 
- 
Siðferðisleg þróun á stafrænni tækni með notendur í fyrirrúmi 

 
            