Upplýsingadagur Evrópska nýsköpunarráðsins (EIC) og Lyfjastofnunar Evrópu (EMA)

6.1.2023

Um er að ræða viðburð á netinu þann 31. janúar nk. frá 8:00 - 11:30 að íslenskum tíma. 

Markmiðið með viðburðinum er að kynna þá stuðningsþjónustu sem Lyfjastofnun Evrópu (EMA) veitir vísindafólki og fyrirtækjum (SME) sem starfa í lyfja- og heilbrigðistækni.

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig á viðburðinn sem fer fram í streymi.

Streymi, dagskrá og nánari upplýsingar

Viðburðurinn er sérstaklega gagnlegur:

  • Ef þú ert frumkvöðull í heilbrigðistæknigeiranum og hefur hlotið fjármögnun frá EIC eða öðrum áætlunum ESB. 
  • Ef þú ert á frumstigi þróunar heilbrigðis- eða lyfjatækni og villt kynna þér regluverk og vita hvaða stuðningur er í boði. 
  • Ef þróun þín í heilbrigðis- og/eða lyfjatækni er langt komin og þú vilt kynna þér hvernig þú getur best sótt þjónustu Lyfjastofnunar Evrópu, svo sem PRIME eða almenna vísindaráðgjöf.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica