Háskóla, opinberar rannsóknastofnanir og fyrirtæki.
Fjármögnun kaupa á dýrum rannsóknartækjum, uppbyggingu rannsóknarinnviða og aðgangs að rannsóknarinnviðum.
Umsóknarfrestur fyrir tillögur að vegvísi rann út 12. september 2024 klukkan 15:00.
Opnað verður fyrir umsóknir á nýjan vegvísi og almennar umsóknir í Innviðasjóð 20. september 2024.
Tímalína fyrir tillögur og umsóknir á nýjan vegvísi um rannsóknainnviði | |
---|---|
06.08.2024 | Opnað fyrir tillögur á nýjan vegvísi |
12.09.2024 | Frestur til að senda inn tillögur á nýjan vegvísi rennur út |
September 2024 |
Opnað fyrir umsóknir á nýjan vegvísi og almennar umsóknir í Innviðasjóð |
31.10.2024 | Umsóknarfrestur til að senda umsóknir til Innviðsjóðs rennur út |
Janúar 2025 | Úthlutun úr Innviðasjóði tilkynnt |
Kynningarmyndband um Innviðasjóð.
Hægt er að skoða öll myndbönd um Innviðasjóð á Youtube rás Innviðasjóðs:
Skoða myndbönd
Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Markmiðið með sjóðnum er að efla innlendar vísindarannsóknir með því að skapa nýja möguleika til rannsókna með fjármögnun tækjabúnaðar/aðstöðu sem ekki er aðgengileg nú þegar.
Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.
Innviðasjóður veitir eftirfarandi styrktegundir:
1. Tækjakaupastyrki
2. Uppbyggingarstyrki
3. Uppfærslustyrki
4. Aðgengisstyrki
5. Innviði á vegvísi
Gert er ráð fyrir að umsækjandi leggi til mótframlag að lágmarki 25%.
Framlag Innviðasjóðs skal að lágmarki vera 2 milljónir króna fyrir Tækjakaup, Uppbyggingu, Uppfærslu eða viðhalds. Ekkert lágmark er á Aðgengisstyrk.
Vinsamlegast kynnið ykkur reglur Innviðasjóðs áður en sótt er um.