Fyrir hverja?
Einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök.
Til hvers?
Tilgangur Jafnréttissjóðs Íslands (e. The Icelandic Gender Equality Fund) er að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna.
Umsóknarfrestur:
Auglýstur síðar.
ENTilgangur Jafnréttissjóðs Íslands, sem stofnaður var árið 2015 með samþykki þingsályktunar nr. 13/144 í tilefni 100 ára kosningaréttarafmælis íslenskra kvenna, er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu.
Jafnréttissjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum. Úthlutað er úr sjóðnum 19. júní.
Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök.
Umsóknum í sjóðinn skal skila inn í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Umsóknum má skila á íslensku og ensku.
Sjóðurinn starfar samkvæmt reglum um úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði Íslands nr. 144/2021
Í starfsreglum Jafnréttissjóðs Íslands er nánar kveðið á um afgreiðslu styrkumsókna.
Við mat á styrkhæfi umsókna verður lagt mat á gæði verkefnis- eða rannsóknaráætlunar, þ.m.t. markmið og skipulag verkefnis, hagnýtingargildi og mikilvægi þess með tilliti til reglna og markmiða sjóðsins um að auka jafnrétti kynjanna. Í samræmi við þingsályktanir um Jafnréttissjóð Íslands leggur stjórn áherslu á að styrkja verkefni og rannsóknir sem;