Tækniþróunarsjóður

Einkaleyfastyrkur

Fyrir hverja?

Einstaklinga, háskóla, rannsóknastofnanir, lítil og meðalstór fyrirtæki.

Til hvers?

Einkaleyfastyrkir eru annars vegar til að undirbúa og skila inn forgangsréttarumsókn og hins vegar að undirbúa og skila inn umsókn í alþjóðlegt ferli. 

Umsóknarfrestur

Opið er fyrir umsóknir í einkaleyfastyrkir allt árið.

Sjá nánar í reglum og leiðbeiningum til umsækjenda Tækniþróunarsjóðs

Hámarksstyrkur

  • 600 þ.kr. fyrir forgangsréttarumsókn.
  • 1.400 þ.kr. fyrir umsókn í alþjóðlegt ferli.

Mótframlag

Greitt er skv. reikningum (án VSK) frá viðurkenndum einkaleyfissérfræðingum og vegna opinberra gjalda. Mótframlagskrafa er að lágmarki 50% af reikningsupphæð.

Hámarkslengd verkefnis

Staðfesting gildir til eins árs.

Skil á umsókn

Umsóknum skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís. Skila þarf inn umsókn til Tækniþróunarsjóðs áður en einkaleyfisumsókn er lögð inn.

Matsferli

Allar umsóknir eru metnar af fagráði Tækniþróunarsjóðs. Fagráðið er þverfaglegt og skipað einstaklingum frá fyrirtækjum, háskólum og stofnunum.


Nánari upplýsingar

  • - Sendið fyrirspurnir til Tækniþróunarsjóðs á netfangið: taeknithrounarsjodur@rannis.is
  • - Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-12 í síma 515 5800







Þetta vefsvæði byggir á Eplica