Desember 2024

desember 2024

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Sóknarstyrkir - stuðningur við sókn í erlenda sjóði 20.10.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Háskólar, stofnanir og fyrirtæki sem sækja um styrki í alþjóðlega rannsóknasjóði geta sótt um Sóknarstyrki. Forgangur er veittur umsóknum í Horizon Europe rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB og norræn samfjármögnunarverkefni, t.d. NordForsk.

Styrkir eru eingöngu greiddir inn á bankareikinga íslenskra stofnana eða lögaðila og umsækjandi um Sóknarstyrk þarf að gegna starfi við bókhaldsstofnun umsóknar.

Til hvers?

Að styrkja íslenska lögaðila í að undirbúa sókn í alþjóðlega rannsóknasjóði og samstarfsáætlanir sem Ísland er aðili að.

Umsóknarfrestur

Opið er fyrir umsóknir allt árið. Úthlutað er í desember hvert ár.

Sótt er um í gegnum mínar síður Rannís.

EN

Lesa meira
 

Arctic Research and Studies - Norðurslóðafræði 1.12.2023 Umsóknarfrestur

Fyrir hverja?

Fyrir starfsmenn háskóla og stofnana sem tengjast norðurslóðafræðum.

Til hvers?

Til að efla langtíma samstarf íslenskra og norskra stofnana með sóknarstyrkjum vegna undirbúningsvinnu við gerð umsókna í alþjóðlega samkeppnissjóði.

Umsóknarfrestur

Opið er fyrir umsóknir til og með 3. desember 2024 klukkan 15:00. 

EN

Lesa meira
 

Vefstofa fyrir umsækjendur í leiðangra (Missions) Horizon Europe 6.12.2024 9:00 - 11:40 Vefstofa

Vefstofan verður haldin 6. desember frá klukkan 9:00 - 11:40 að íslenskum tíma. Umfjöllunarefnið er áskoranir og sérkenni frá sjónarhóli umsækjenda.

Lesa meira
 

eTwinning á Íslandi leitar að nýjum sendiherrum 10.12.2024 23:59 Umsóknarfrestur

Rannís leitar að kennurum í leik-, grunn- eða framhaldsskólum sem vilja gerast eTwinning sendiherrar frá og með 2025. Sendiherrar stuðla að framþróun eTwinning, veita kennurum ráðgjöf, halda kynningar og taka þátt í netverkum á norrænum og evrópskum vettvangi.

Lesa meira
 







Þetta vefsvæði byggir á Eplica