Á döfinni
Einkaleyfisstyrkur
Hámarksstyrkur
- 600 þ.kr. fyrir forgangsréttarumsókn.
- 1.400 þ.kr. fyrir umsókn í alþjóðlegt ferli.
Mótframlag
Greitt er skv. reikningum (án VSK) frá viðurkenndum einkaleyfissérfræðingum og vegna opinberra gjalda. Mótframlagskrafa er að lágmarki 50% af reikningsupphæð.
Hámarkslengd verkefnis
Staðfesting gildir til eins árs.
Skil á umsókn
Umsóknum skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís. Skila þarf inn umsókn til Tækniþróunarsjóðs áður en einkaleyfisumsókn er lögð inn.
Matsferli
Allar umsóknir eru metnar af fagráði Tækniþróunarsjóðs. Fagráðið er þverfaglegt og skipað einstaklingum frá fyrirtækjum, háskólum og stofnunum.
Nánari upplýsingar
- - Sendið fyrirspurnir til Tækniþróunarsjóðs á netfangið: taeknithrounarsjodur@rannis.is
- - Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-12 í síma 515 5800