Á döfinni

Fyrirtækjastyrkur Fræ/Þróunarfræ

  • 4.4.2016 - 16:00, Umsóknarfrestur, Tækniþróunarsjóður
  • 3.4.2017 - 16:00, Umsóknarfrestur
  • 4.4.2018 - 16:00, Umsóknarfrestur
  • 1.4.2020 - 16:00, Umsóknarfrestur
  • 1.11.2022, Umsóknarfrestur
  • 31.12.2022, Tækniþróunarsjóður. Opið fyrir umsóknir allt árið.

Hámarksstyrkur

Hámarksstyrkur er 2.000 þ.kr.

Mótframlag

Ekki er gerð mótframlagskrafa í þessum styrkjaflokki.

Hámarkslengd verkefnis

Skil á niðurstöðum verkefna þurfa að liggja fyrir innan 12 mánaða frá umsóknardegi.

Skil á umsókn

Alltaf er opið fyrir umsóknir. Umsóknir sem berast eru teknar fyrir og úthlutun tilkynnt að lágmarki tvisvar á ári. Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís.

Matsferli

Umsóknir eru metnar af fagráði Tækniþróunarsjóðs. Fagráðið er þverfaglegt og skipað einstaklingum frá fyrirtækjum, háskólum og stofnunum.

Í þessum flokki fá umsækjendur ekki einkunn eða umsögn um verkefnið. Umsækjendur fá tilkynningu um hvort stjórn hafi ákveðið að styrkja verkefnið eða ekki. 

Skýrsluskil

Skila þarf inn lokaskýrslu eigi síðar en 12 mánuðum frá upphaflegum umsóknarfresti. 

Minniháttar aðstoð (De minimis)

Þessi styrkjaflokkur fellur undir reglur um minniháttar aðstoð. Nánari upplýsingar um minniháttar aðstoð má sjá í reglum Tækniþróunarsjóðs. 

 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica