Á döfinni
Kynningarfundir á vegum IASC og Rannís
Á fundunum verða kynntir verkefnastyrkir á vegum alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndarinnar (IASC) árið 2023 og hvernig þú/þín stofnun getið tekið þátt í að móta áherslur norðurslóðarannsókna næsta áratuginn í aðdraganda fjórðu alþjóðlegu ráðstefnunnar um skipulagningu norðurslóðarannsókna (ICARP IV).
Á fundunum munu Gerlis Fugmann, framkvæmdastjóri skrifstofu IASC, og Egill Þór Níelsson, IASC fulltrúi Íslands og sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, kynna:
- Verkefnastyrki IASC 2023 fyrir norðurslóðaverkefni – umsóknarferlið og -fresti,
- Vísindaviku norðurslóða 2023
- ICARP IV ferlið – tækifæri allra hagaðila að móta rannsóknaáherslur
- Norðurslóðarannsóknir á Íslandi og alþjóðlegt samstarf
Fundirnir verða tveir, annars vegar á Akureyri og í Reykjavík.
- Akureyri, 8 nóvember, 13:00-14:30, Borgir (við inngang)
- Reykjavík, 14 nóvember, 10:30-12:00, Rannís, Borgartúni 30
- Fundirnir verða einnig aðgengilegir á Zoom
Fundirnir fara fram á ensku
Öll velkomin
Kaffiveitingar í boði.